Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
Ritstjóri Kristín Bjarnadóttir
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls er safn beygingardæma sem birt eru í heild á vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þar má leita að orðum og einstökum beygingarmyndum orða, þ.m.t. mannanöfnum. Í safninu eru nú 259.357 beygingardæmi.
Leita má með tvennu móti í safninu. Í fyrsta lagi er leitað að hefðbundinni uppflettimynd orða, þ.e. nefnifalli eintölu af nafnorði (hestur), nafnhátt sagnar (koma), og nefnifall eintölu í karlkyni, frumstig af lýsingarorðum (góður).
Ef hakað er við "Leit að beygingarmynd" má slá inn hvaða orðmynd sem er, t.d. hestur, hesti, hestinum, hests, hestarnir; koma, kemur, kom, komumst, kominn; góður, góðan, gott, betri, bestur.Upprunalegt markmið við gerð Beygingarlýsingarinnar var að koma upp beygingarlýsingu á tölvutæku formi sem nýtast mætti til tungutækniverkefna af ýmsu tagi, í orðabókargerð og við málfræðirannsóknir. Jafnframt var markmiðið að gera Beygingarlýsinguna aðgengilega fyrir almenning á vefnum. Vinna við verkið hófst árið 2002.
Öll afritun Beygingarlýsingarinnar er bönnuð án skriflegs leyfis.
Rétthafi efnisins er Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem sér um vefsíðuna og miðlun efnisins samkvæmt samningi við Menntamálaráðuneytið.
Vefsíða í vinnslu. Athugasemdir og ábendingar berist Kristínu Bjarnadóttur.
